Ein með öllu! Aðstöðuvagn með eldhúskrók og klósetti

Bergvagnar hafa látið sérhanna fyrir sig vagn eftir ábendingum og óskum íslenskra verktaka.

Þetta er einstaklega vel útbúinn vagn með eldhúskrók, heitu og köldu vatni og vatnsklósetti með kvörn, þar sem frárennslið fer í gegnum 1” slöngu. Vagninn er einnig með rafmagnsinntaki sem gerir hann hentugan til notkunar við fjölbreyttar aðstæður.

Vagninn er einnig fáanlegur með klósetti og safntanki.

Hann er útbúinn með tvöföldum hurðum eða rampi að aftan og nýtist því einnig vel sem flutningsvagn. Auk þess hentar hann frábærlega sem verkstæði eða vinnuaðstaða á verkstað, og jafnvel sem svefnaðstaða.

Fæst í mismunandi stærðum:
420 cm, 470 cm, 500 cm, 550 cm og 600 cm að lengd.

Grunnverð á 420 vagni með hlerum er 2.855.000 +vsk